09október
An American said:
*'We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash.'*
*And an Icelander replied:
*'We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash'.Muna svo að brosa :)
06október
..að ég er farin að hlakka til jólanna :D nóg um það þó í bili.
Ég náði sumarskólanum og fékk 9 í fyrsta landafræðiprófinu :) er reyndar búin að skila verkefnum sem ég fékk fullt hús stiga fyrir :) Það þýðir ekkert að vera að eyða tímanum í fjarnámi ef þú ætlar þér ekki að ná því :) Mér gengur sem sagt bara mjög vel. Saga 303 mætti vera aðeins meira spennandi en þetta er fínt samt.
Dem.. Sunneva vöknuð..
bæ
21september
öss er búin að læra svo mikið fyrir íslenskuprófið að ég er ekki vitund stressuð fyrir það! Þetta getur ekki klikkað! Ég vek Sunnevu og Eið kl 7 í fyrramálið svo Sunneva verði alveg örugglega sofandi kl 9 þegar ég fer í prófið! Litla snúllan :* **Gangi mér vel í prófinu**
Það er ótrúlegt að ræða við fólk um trúarbrögð!! Ég var alinn upp við það að Guð hafi skapað Adam og Evu og allt það!! Fór í Sunnudagsskólann á hverjum Sunnudegi, var látin fara með bænirnar á kvöldin, amma var í kirkjukórnum og við lékum okkur mikið í gamla safnarðarheimilinu.. svo á endanum fermdist ég!!
Jæja.. móðir mín rekur alltaf upp stór augu þegar ég segi að við séum komin af öpum! og umræðurnar geta verið ansi heitar og hún skilur ekki hvernig ég geti haldið það miðað við hvernig hún/þau höfðu alið mig upp. Jæja.. hún heldur því líka fram að Guð hafi skapað jörðina.. ég reyndi að segja henni frá BigBang :) hún hafði aldrei heyrt um það áður og ég mundi ekki alveg hvernig hann var í smáatriðum svo það þýddi ekki fyrir mig að reyna að útskýra þetta fyrir henni!!! :) Þá sagðist hún verða brjáluð ef hún fengi ekki að hitta mömmu sína og pabba þegar hún væri dáinn, í himnaríki! og spyr mig svo víst ég segji að við séum komin af öpum og jörðin af BigBang hvað ég héldi að væri eftir dauðann??? Langaði mig ekki að fara í himnaríki??? Jújú ef það er til þá langar mig að fara þangað en frekar myndi ég vilja vaka yfir mínu fólki og passa það og þá sérstaklega börnin mín.
Svo ég spyr bara sjálfan mig.. hverrar trúar er ég?? og hvað er ég að gera í þjóðkirkjunni??
"Ég hugsa um það sem ég las um í glanstímariti, þar sem lesendur gátu sent inn spurningar til prests. Kona ein var ennþá ástfanginn af gamla kærastanum sínum og spurði prestinn hvað hún ætti að gera. Presturinn svaraði á þá leið að svona væri þetta oft með gömul sambönd. Hún mætti samt ekki ásaka sjálfa sig! En sannleikurinn er jú samkvæmt trúarbrögðunum að konan á einmitt að ásaka sig sjálf. Hún er hóra sem ætti að plokka augun úr og hendur hennar ætti að vera höggnar af, jú og kannski svona í lokin ætti að grýta hana til dauða. Þetta segir í biblíunni. Vilji guðs er jú eilífur og óbreytanlegur. Ef maður skilur ekki eitthvað eins grundvallandi eins og boðorðin tíu ætti maður kannski ekki að verða prestur." Þetta var á vantrú.is!
Í Biblíunni stendur að ekki megi gefa saman fólk af sama kyni og að samkynhneigð sé dauðasynd.. ég er alveg viss um að Guð hafi ekki staðið yfir þessum mönnum sem skrifuðu biblíuna og sagt þeim að setja þetta í hana! Eins og sagt er "Guð er góður,, af hverju ætti hann þá að mismuna fólki þar sem samkynhneigð hefur alltaf verið til!!! Ég held mér nú samt í þjóðkirkjunni :) Þó svo ég trúi ekki þessu eldgamla bulli sem fullt af mönnum skrifuðu og oft búið að endurskrifa!! Ef fólk væri að trúa Biblíunni 100% þá væru allmargir handalausir og með annað augað :DTakk fyrir mig :D og endilega kíkið á mælinguna :) var að setja nýja inn :))
Anika Rós
12september
var að koma inn úr góðri göngu með henni Sunnevu minni! Hún er svo mikil drottning og vill bara láta ganga með sig.. algjör en það fær mig þá líka til þess að skuttlast út í göngu og hafa það svo gott eftir hana. Manni líður svo vel eftir svona góða hreyfingu.
Mataræðið gengur alveg frábærlega :) Mér líður alveg ofboðslega vel :D Reyndar hef ég verið að fá hiftarlega magaverki síðan ég varð ófrísk af Sunnevu minni og er það eitthvað tengt lifrinni :( Fer í ómskoðun á henni á mánudaginn og þá kemur væntanlega eitthvað í ljós. Ég vil bara alls ekki fá þessa verki aftur!! ALLS EKKI!! Ég verð bara að vera þolinmóð fram á mánudag...og vona það besta ef það er einhvað gott við þetta.
Ég verð að segja ykkur hvað ég fæ mér í morgunmat.. hef verið að fá mér hafragraut en Siggi kom mér upp á Múslí m. létt jógúrti og smá kanil!! Þetta er frábær morgunmatur mig hlakkar til að vakna á morgnanna til þess að fá mér svona jammmíí og svo þegar sonurinn vaknar þá er ég fljót að koma mér frammúr :) Ég mæli með því a þið prufið þetta ;)
Svo er hinn vinsæli nammidagur á morgun.. ég verð að segja að ég er ekkert svaka spennt yfir honum! Veit ekkert hvað ég á að fá mér.. þori eigiilega ekki að fá mér neitt útaf maganum ef verkurinn tengist eitthvað mat, sem ég hef ekki hugmynd um. Ætla að skella mér upp í rúmm og horfa á One tree hill :)) því ég er búin að horfa á Gossip Girl :D Elska þessa þætti.
kv. Anika Rós magapína
09september
...veit ekki hvort ég sé ein um að taka eftir þess en það virðast mjög margir vera farnir að skella sér út að hlaupa, nú allavega hérna á vellinum og ég hef líka séð kjellingar í hópum úti að hlaupa down town! Ég viðurkenni það fúslega að þetta er smitandi og ég get ekki beðið eftir því að skella mér í einn sprett. Mér liggur svo sem ekkert á að fara en þetta er líka bara svo hressandi og brítur daginn vel upp..já allavega hjá konu sem hengur heima í fæðingarorlofi
.
Kílóin fara af hægt og bítandi ef svo má segja.. þau væru væntanlega ekkert farin ef ég væri ekki búin að ganga í gegnum meðgöngu og væri ekki með Sunnevu á brjósti. Svo er maður auðvita að reyna að borða hollt og gott!!
Maginn er nánast bara farin.. mér til mikillar gleði! Flest öll fötin mín eru hálf hangandi á mér! þá meina ég þau sem ég gékk í áður en ég varð ólétt og er ég farin að nota gömlu fötin mín aftur :) veivei!!
Ég var að skoða myndir af mér síðan í Danmörku í fyrra og mér blöskraði!! Þið getið séð þetta sjálf en andlitið á mér er hringlótt :) hahaha...
Þá er bara að halda áfram á sömu braut :) ég er að fara í sögu 303, fél 303 og lan 103 þess önn og mig hlakkar bara ágætlega til! Þetta verður gaman og ágætt að lokaprófin gildi ekki 80% eins og þau sem ég var í gerðu.
jæja cm eru að koma inn :) og síða sem ég og aðalega Siggi notum og skoðum mikið!
kv. Anika Rós
26ágúst
14 merkur og 51 cm :) Algjört gull.. Gasalega falleg og stórglæsileg.
En ég er rosalega glöð, þó svo að það sé alveg æðislegt að vera með lítið líf í maganum þá er rosalega gott og þægilegt að getað hreift sig almennilega og sofið á maganum! :D Ég sef eins og steinn á maganum :)) hihi.. Fór með soninn á rólóvöllinn og naut þess að geta hlupið á eftir honum og stokkið upp og niður tækin :) Fórum svo að týna bláber :) jább svona er að vera í sveitinni :) Hellingur af bláberjum hérna fyrir aftan.
En kílóin fuku af :) 12 kíló farin :) og skvísan bara 2 vikna ;D Er líka búin að fara í nokkrar gönguferðir og þá gengur maður alveg eins hratt og maður getur :) :) geri líka stundum smá æfingar þegar ég vakna :D hehehe.. en maður þarf að hafa fyrir þessu ef maður ætlar sér þetta. Mataræðið er alveg 100% hollt og gott enda annað bara vittleysa! Það eru alveg nokkrir cm farnir af lærunum og fjölmargir af maganum enda legið ennþá að draga sig saman. Kannski að maður ætti að setja cm hérna inn! Sé til.. set kannski inn mynd líka en þá læsi ég síðunni! :)
Þá er bara að halda áfram á góðri braut :) borða hollt og gott og að hreyfa sig með..
Hérna er mynd af fallegu minni..
Stolt stráka og stelpu mamma :)Anika
22júlí
..jább var að enda við að hengja upp pínkuponsu samfellur :D og næst fer allt það bleika og fjólubláa í vélina :) Tengdó tók sængina og ætlar að láta fylla í hana og þá er bara eftir að setja ofaní heimferðartöskuna :D Fíni Simo vagninn minn bíður eftir að fá að fara í fyrsta göngutúrinn og bílstóllinn eftir að fá að faraí bílinn :) Hlakka svoooo til :)
Kristjana vinkona er búin að eiga og átti hún litla skvísu :) Algjer bjútý... Til hamingu enn og aftur...
Siggi minn er alveg að verða vittlaus á átinu í mér :S Verð að viðurkenna að ég er það líka, skelfing að ráða bara alls ekki við þetta :)) Alger mathákur sko... en ég passa mig samt sem áður og borða mína ávexti og drekk mitt vatn :) Er eigilega alveg hætt í kókinu :D en er alltaf nartandi í hvað sem er! Hlakka svo til að komast í form og byrja að mæla mig og vigta!
Og váá hvað mig hlakkar til að sofa heila nótt án þess að fara á klósettið!!! En á væntanlega ekki eftir að sofa heila nótt fyrr en...jámm.. eftir ár kannski :) hehe.. ef skvísan verður eins og bróðir sinn þá mun það vera um ár :D En það er í góðu lagi...
Svo var ég að fá bumbumyndirnar mínar sem við fórum í hjá Gamanmyndum en svei mér þá.. er bara alls ekki ánægð með þær og ætla sko ekki með skvísuna þangað eftir fæðingu! Nei takk...
En hér er ein mynd sem ég gerði sjálf... 
15júlí
... þetta verður þó aðalega átaksíða þar sem ég get ekki beðið eftir að komast í form aftur :D Er orðin pínu þreitt á að geta ekki hlupið upp stigann eða beygt mig niður eftir einhverju :)
Það eru 4 vikur eftir af meðgöngunni :) og þá verður bara vigtað og mælt :) Ekki misskilja mig, ég er ekki að fara í eitthvað svaka átak og fara á fullt í ræktinni :) Bara að borða hollt og gott og fara út að labba með börnin mín. Það verður fróðlegt að sjá hve langan tíma ég verð að jafna mig á mallakútnum :D en það tók sinn tíma eftir meðgönguna með Eið Daða!

Jæja ætli ég hendi kannski einni bumbumynd á opinn vefinn :D

29janúar
...er búin að missa 8 kg :D Allt gengur eins og í sögu :)
En ég er hætt með þessa síðu í bili og verð mikið að blogga á barnalands síðunni hjá Eið Daða..
www.eidur.barnaland.is
Ég ætla að breyta lykilorðinu svo þið verðið að senda á mig mail anikaros@hotmail.com og fá það nýja :D þar verða nýjar fréttir af familíjunni vikulega eða svo :) Það er hægt að commenta á færslurnar þar líka svo endilega gerið það.
Jæja... hlakka til að heyra frá ykkur stelpur :)
Kveðja Anika Rós
12október
Þessi lýsir mér alveg fullkomnlega :D Hamingjusöm og brosandi. Frá og með þessum degi verður margt öðruvísi en í fyrradag og mikklu skemmtilegra ;)
Ef e-h veit hvað er um að vera þá megið þið þaga um það :D Thanx ..
En jæja það eru 38 dagar í verslunarferðina okkar Sigga og jafn framt erum við að fara í fyrsta sinn saman til USA :) Ferðin verður að öllum lýkindum pöntuð um helgina. Ef þið vitið um e-h verslun eða bara e-h í Minniapolis endilega kommentið og deilið :))
Ég ætlaði ekki að hafa þetta langt, skemmtið ykkur vel um helgina en farið þó hægt um gleðinnar dyr.
Ég minni á The Secret, ótrúlegt en satt þá rættist langþráður draumur okkar Sigga um daginn :) hehe..
"Stundum er nauðsynlegt að koma e-g ákveðnu í verk. Þú munt vita það þegar þú ert á réttri leið því framkvæmdinni fylgir mikil gleði. Verkið fyllir þig innblæstri og atorku og sjálfsagt mun tíminn bókstaflega hlaupa frá þér án þess að þú takir eftir því. Þú gætir haldið endalaust áfram,,
Þegar ég las þetta þá minnti þetta mig á þegar ég er að þrífa... ég elska ekki að þrífa og ekki þegar heimilið mitt er í ryki eða drullu (þið vitið hvað ég meina) en þegar það er búið þá er kl allt í einu orðin þvílíkt margt og allt heimilið skínandi hreint og ég ánægð með fríska loftið inni hjá mér :)))
>>>Góða helgi gott fólk<<<